Ævintýralegar flúðasiglingar í Skagafirði

Fyrir þá sem vilja mikla spennu er tilvalið að fara í flúðarsiglingu niður Jökulsá vestari eða Jökulsá austari. Þessar ferðir njóta mikilla vinsælda og æ fleiri hafa reynt þessar ævintýralegu ferðir enda gljúfrin sem siglt er um einstök náttúruundur.
Flúðasigling er vinsæl og fjörmikil afþreying fyrir alla fjölskylduna. Fyrir yngstu og elstu meðlimina hentar að fara á Blöndu en það er tilvalin skemmtun fyrir fjölskyldur með ung börn. Landslagið meðfram ánni er fallegt, vatnshraðinn lítill svo nýtt sjónarhorn á náttúruna nýtur sín vel. Þeir sem eru 12 ára og eldri geta farið á Vestrari Jökulsá og sú Austari er fyrir þá sem eru 18 ára og eldri, búa yfir svolítilli reynslu og langar að reyna meira á sig.
Þegar siglt er niður árnar blasir hvarvetna á leiðinni við stórbrotin náttúra og merkir staðir. Frábær blanda af spennu og skagfirskri náttúrufegurð.
Reyndir íslenskir og erlendir leiðsögumenn eru í flúðasilgingunum og fyllsta öryggis er gætt.
Saga Travel
Kaupvangsstræti 4
600, Akureyri
558-8888
www.sagatravel.is
Saga Travel er norðlenskt ferðaþjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreytt úrval dagsferða frá Akureyri og Mývatni undir leiðsögn reynslumikilla ...
Allt árið
Arctic Rafting
Hafgrímsstaðir
560, Varmahlíð
571-2200
Arctic Rafting er íslenskt ævintýra og afþreyinga fyrirtæki sem leggur áherslu á vistvæna ferðamennsku í einstakri náttúru Íslands.Ef þig langar ...
01/05 - 30/09
Jón Þór Benediktsson / The Traveling Viking
Ytri Bakki
601, Akureyri
896-3569
ttv@ttv.is
www.ttv.is
The Traveling Viking er nýr og framsækinn ferðaskipuleggjandi í Eyjafirði með áherslu á norðaustur Ísland.The Traveling viking býður upp á ...
Allt árið
Ferðaþjónustan Bakkaflöt
Tungusveit
560, Varmahlíð
453-8245
www.bakkaflot.com
Ferðaþjónustan á Bakkaflöt  er við veg no. 752. 11 km frá vegi no. 1 við Varmahlíð. Á Bakkaflöt er boðið upp á flúðasiglingar (rafting) í ...
Allt árið
Ævintýraferðir
Vegamót
560, Varmahlíð
453-8383
Í Varmahlíð, í hjarta Skagafjarðar bjóða Ævintýraferðir upp á gistingu í sumarhúsum / heilsárshúsum af mismunandi gerðum allt frá 35 fermetra ...
Allt árið
Arctic Adventures
Laugavegur 11
101, Reykjavík
562-7000