Fjölbreytt og skemmtileg afþreying á Norðurlandi

Norðurland býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir þá sem vilja njóta ævintýralegrar skemmtunar í sannkallaðri náttúruparadís.

Óteljandi möguleikar eru til útivistar og allir finna eitthvað við sitt hæfi. Golfvellir eru víða og mikið er af fjölbreyttum og fallegum gönguleiðum. Veiðar, útreiðartúrar og siglingar á sjó, ám eða vötnum eru einnig vinsælir kostir. Boðið er upp á skipulagðar skoðunar- og útivistarferðir milli bæja, út í eyjar og inn á hálendið til að skoða stórbrotið landslag Norðurlands. Útisundlaugar eru víða og aðstaða fyrir ferðamenn er með besta móti.

Ævintýrin bíða þín á Norðurlandi.